1
00:01:02,754 --> 00:01:04,298
Ó, nei.

2
00:01:04,298 --> 00:01:05,299
Í alvöru?

3
00:01:06,133 --> 00:01:10,804
- Ég hélt það yrðu bara gluggarnir.
- Hví myndirðu velja þetta af öllum litum?

4
00:01:10,804 --> 00:01:13,348
Notaðu Adobe rauðan ef þú vilt rauðan.

5
00:01:15,100 --> 00:01:16,476
Hvað kallast þetta?

6
00:01:17,394 --> 00:01:18,687
Slökkviliðsrauðan?

7
00:01:19,646 --> 00:01:21,106
Tómatrauðan.

8
00:01:21,690 --> 00:01:23,275
Greyið nágrannarnir.

9
00:01:51,136 --> 00:01:52,429
Hvílíkur hryllingur.

10
00:01:53,597 --> 00:01:57,434
Það er ekki séns
að húseigendafélagið hafi samþykkt litinn.

11
00:01:58,435 --> 00:02:00,103
Barb missir sig.

12
00:02:02,022 --> 00:02:04,858
Kannski get ég rætt við hana.

13
00:02:05,651 --> 00:02:06,985
Hvað getur Barb gert?

14
00:02:07,569 --> 00:02:09,613
Staðurinn er ekki í Mountain View.

15
00:02:09,613 --> 00:02:11,573
Þetta er Enchantment Hills.

16
00:02:11,657 --> 00:02:14,493
Enchantment Hills byrja á Pinon Lane.

17
00:02:14,493 --> 00:02:17,496
Manstu þegar Westlake-parið
gróðursetti aspirnar?

18
00:02:17,496 --> 00:02:18,955
Allt það rugl?

19
00:02:21,083 --> 00:02:24,878
Ég hélt að þau sönnuðu
að eignin þeirra væri í Enchantment Hills.

20
00:02:25,837 --> 00:02:27,881
Þau greiddu fyrir landmælingar.

21
00:02:28,590 --> 00:02:29,508
Í alvöru?

22
00:02:30,550 --> 00:02:31,676
Hvar heyrðirðu það?

23
00:02:32,386 --> 00:02:33,720
Kannski Robbie Davis.

24
00:02:35,305 --> 00:02:37,641
Ég skoða kortið aftur eftir sturtuna.

25
00:02:42,187 --> 00:02:43,063
Viltu?

26
00:02:43,772 --> 00:02:44,898
Nei. Ég er góður.

27
00:02:55,325 --> 00:02:56,451
Er þetta íste?

28
00:02:57,828 --> 00:02:59,246
Má bjóða þér?

29
00:02:59,246 --> 00:03:01,123
Endilega. Takk, frú.

30
00:04:36,056 --> 00:04:36,974
Hvernig gengur?

31
00:04:38,893 --> 00:04:41,437
Eins og vanalega. Þú veist, höldum áfram.

32
00:04:43,314 --> 00:04:45,774
Við fengum stóran kúnna í síðustu viku.

33
00:04:46,275 --> 00:04:48,110
Tryggingafélag í Santa Fe.

34
00:04:48,611 --> 00:04:51,822
Það sér um flestar
dýrari fasteignirnar þar.

35
00:04:51,906 --> 00:04:52,948
Frábært.

36
00:04:55,034 --> 00:04:56,744
Howard, ég er ekki hluthafi.

37
00:04:58,370 --> 00:04:59,788
Ég er bara að hita upp.

38
00:05:00,748 --> 00:05:03,709
En ég held samt þú yrðir frábær lögmaður.

39
00:05:03,793 --> 00:05:06,253
Takk, en ég afþakka.

40
00:05:08,380 --> 00:05:11,008
Heima eru málin meira eða minna eins.

41
00:05:12,301 --> 00:05:13,427
Ekki verri.

42
00:05:14,386 --> 00:05:16,305
Ég ætti að vera þakklátur því.

43
00:05:17,890 --> 00:05:19,099
Eins og við séum...

44
00:05:20,601 --> 00:05:21,477
...í dauðahaldi.

45
00:05:28,484 --> 00:05:32,196
Cheryl ræðir enn ekkert mikilvægt.

46
00:05:33,656 --> 00:05:35,824
- Reyndirðu það sem við ræddum?
- Já.

47
00:05:36,325 --> 00:05:38,577
Já, ég en...

48
00:05:47,670 --> 00:05:48,837
Mig dreymdi.

49
00:06:13,237 --> 00:06:16,824
Svo ég lít á miða gamla mannsins
og hann er fyrir alþjóðlegt flug.

50
00:06:16,824 --> 00:06:18,826
Við leituðum að númeri hliðsins

51
00:06:18,826 --> 00:06:22,454
en öll skiltin eru
á máli sem ég skil ekki.

52
00:08:02,721 --> 00:08:03,722
Kim!

53
00:08:07,434 --> 00:08:08,352
Var umferð?

54
00:08:08,352 --> 00:08:10,354
Nei. Autt niður 25.

55
00:08:10,354 --> 00:08:11,271
Við erum hér.

56
00:08:12,231 --> 00:08:13,524
Takk fyrir að hitta mig.

57
00:08:13,524 --> 00:08:17,027
- Þú ert víst á kafi þegar þú ert í bænum.
- Ekki slæmt í dag.

58
00:08:17,111 --> 00:08:19,154
Reyndar á ég fund á gamla staðnum þínum

59
00:08:19,238 --> 00:08:20,531
með Schweikart.

60
00:08:20,531 --> 00:08:22,866
-Ég bið að heilsa Rich.
- Auðvitað.

61
00:08:22,950 --> 00:08:26,745
- Hvernig er Jimmy?
- Fínn. Takk fyrir að spyrja. En Alice?

62
00:08:26,829 --> 00:08:28,163
Henni gengur vel.

63
00:08:28,247 --> 00:08:31,250
Hún er farin að baka og ég kvarta ekki.

64
00:08:31,875 --> 00:08:34,211
- En heppinn.
- Ég veit það.

65
00:08:34,211 --> 00:08:36,296
Ég frétti þeir útbúa rosalegt latte.

66
00:08:36,380 --> 00:08:39,550
Já. Þeir etja góðu kappi við Java Joe,
spyrjirðu mig.

67
00:08:52,771 --> 00:08:55,774
MÓTEL SKRIFSTOFA

68
00:09:09,204 --> 00:09:10,622
Heyrðu, heyrðu.

69
00:09:10,706 --> 00:09:11,540
Svona nú.

70
00:09:12,708 --> 00:09:13,667
Ég fékk kúnna.

71
00:09:13,751 --> 00:09:15,419
Ókei, við verðum að fara.

72
00:09:15,419 --> 00:09:17,004
Komdu, verðum að fara.

73
00:09:20,049 --> 00:09:21,175
Hvað ertu að gera?

74
00:09:22,926 --> 00:09:24,178
Nei, nei.

75
00:09:24,178 --> 00:09:26,346
Komdu. Við verðum að fara. Núna.

76
00:09:27,181 --> 00:09:28,223
Ég fæ mér rótarbjór.

77
00:09:28,307 --> 00:09:30,934
Nei. Við erum á dagskrá, manstu?
Við ræddum það.

78
00:09:31,018 --> 00:09:32,853
Ég setti tvo peninga í.

79
00:09:32,853 --> 00:09:36,607
Ég kaupi heilan kassa fyrir þig
þegar við erum búin.

80
00:09:36,607 --> 00:09:38,525
Svona. Beint inn.

81
00:09:40,194 --> 00:09:41,445
Alla leið.

82
00:10:10,099 --> 00:10:11,433
TILBÚINN

83
00:10:25,614 --> 00:10:26,782
Er allt í lagi?

84
00:10:26,782 --> 00:10:27,699
Auðvitað.

85
00:10:31,411 --> 00:10:33,205
Þurfum við að ræða það aftur?

86
00:10:33,205 --> 00:10:34,122
Nei.

87
00:10:36,250 --> 00:10:39,294
Mundu bara að halda fótunum frá.

88
00:10:39,378 --> 00:10:41,380
Því ég þarf að fara í hvelli.

89
00:10:44,716 --> 00:10:45,551
Hvað?

90
00:10:46,635 --> 00:10:49,096
Hárið á þér er rosalega flott.

91
00:10:51,181 --> 00:10:52,015
Það er ekki...

92
00:10:52,099 --> 00:10:53,934
Takk.

93
00:10:57,646 --> 00:10:59,356
En ef það væri önnur leið?

94
00:10:59,356 --> 00:11:03,235
Ef það væri sjálfstætt lið lögmanna,
kannski fjögurra, fimm,

95
00:11:03,235 --> 00:11:05,654
sem sérhæfði sig í erfiðum málum?

96
00:11:05,654 --> 00:11:09,950
Ég segi ekki að nokkrir lögmenn gætu leyst
stóran kerfisbundinn vanda.

97
00:11:09,950 --> 00:11:12,494
En þeir gætu gert hann betri.

98
00:11:13,370 --> 00:11:14,997
Hví leitaðirðu til mín?

99
00:11:17,082 --> 00:11:18,584
Ef ég vildi vera smeðja,

100
00:11:18,584 --> 00:11:22,045
segði ég það vera vegna
samfélagslegrar samvisku þinnar.

101
00:11:22,129 --> 00:11:25,549
En það er í raun vegna
tenginga þinna við fylkisstjórnina.

102
00:11:25,549 --> 00:11:28,135
- Þú getur látið mál gerast.
- Sanngjarnt.

103
00:11:29,553 --> 00:11:32,222
Kim, fyrirtækið hefur þjónustunefnd.

104
00:11:33,056 --> 00:11:37,394
Þú ættir að fara í röðina til þeirra
með öllum hinum mikilvægu málefnunum.

105
00:11:38,228 --> 00:11:40,856
En þú hefur munninn fyrir neðan nefið.

106
00:11:43,817 --> 00:11:46,778
Þú hefur víst heyrt
af neysluvanda sonar míns.

107
00:11:48,864 --> 00:11:52,743
Barátta Gregory veitti mér
persónulega sýn á lagakerfið.

108
00:11:54,786 --> 00:11:57,873
Kim, ég held þú sért með eitthvað.

109
00:12:05,964 --> 00:12:07,341
NÚNA!

110
00:12:14,389 --> 00:12:18,018
Ekki spara aðstoðarmennina.
Þeir eru hjarta verkefnisins.

111
00:12:18,018 --> 00:12:20,646
Ég veit það er þannig
á okkar skrifstofu...

112
00:12:24,024 --> 00:12:26,234
Nei, nei!

113
00:12:26,318 --> 00:12:27,319
Jesús...

114
00:12:28,236 --> 00:12:30,572
Tíkarsonurinn þinn.

115
00:12:31,698 --> 00:12:34,618
Ömurlegi, helvítis auminginn þinn!

116
00:12:34,618 --> 00:12:36,745
Var þetta ekki Howard?

117
00:12:36,745 --> 00:12:39,081
Fjandinn! Þú skuldar mér!

118
00:12:39,081 --> 00:12:40,582
Er í lagi með þig, frú?

119
00:12:40,666 --> 00:12:42,209
- Þú skuldar mér!
- Frú.

120
00:12:42,209 --> 00:12:44,127
- Ég meina...
- Enginn gerir þetta.

121
00:12:44,211 --> 00:12:46,463
Ég veit ekki. Það gerðist svo hratt.

122
00:12:46,463 --> 00:12:49,341
Andskotans! Þú skuldar mér! Svindlið!

123
00:12:50,258 --> 00:12:51,385
Fjandinn hirði þig!

124
00:13:13,365 --> 00:13:15,409
Nei, nei!

125
00:13:15,409 --> 00:13:17,411
Færðu þeir keiluna?

126
00:13:17,995 --> 00:13:20,706
Hverslags fífl færir keilu?

127
00:13:23,166 --> 00:13:25,252
Djöfulsins!

128
00:13:46,940 --> 00:13:48,775
AÐEINS SJÚKLINGAR

129
00:15:16,738 --> 00:15:20,742
CROSSROADS
MÓTEL

130
00:15:29,960 --> 00:15:31,169
Heyrðu.

131
00:15:32,838 --> 00:15:34,589
Farðu varlega, ókei?

132
00:15:35,966 --> 00:15:36,842
Ókei.

133
00:15:41,972 --> 00:15:43,974
- Hvað?
- Löggan.

134
00:15:44,933 --> 00:15:47,394
Það drepur viðskiptin út daginn.

135
00:15:48,478 --> 00:15:50,313
Alltaf að atast í mér.

136
00:15:52,149 --> 00:15:54,401
- Leynilögreglumenn?
- Já.

137
00:15:56,319 --> 00:16:01,616
Heyrðu, eigirðu í lagalegum vanda,
hringdu þá í mig.

138
00:16:01,700 --> 00:16:03,869
Hvenær sem er, kostar ekkert.

139
00:16:06,037 --> 00:16:07,080
Takk.

140
00:17:03,511 --> 00:17:05,972
Ég lagði Jagúarnum á hleðslusvæðinu

141
00:17:06,056 --> 00:17:08,099
og fór að lyfta þessu járndrasli.

142
00:17:08,183 --> 00:17:09,309
Guð minn góður.

143
00:17:09,309 --> 00:17:12,312
Það lá djúpt, svona eins og brunnur.

144
00:17:12,312 --> 00:17:17,692
Svo ég barðist við það
eins og björn og ég...

145
00:17:18,235 --> 00:17:22,697
...stakk því niður
fyrir framan Jagúarinn. Búmm.

146
00:17:22,781 --> 00:17:25,408
Rétt komst þaðan fyrir heppni.

147
00:17:25,492 --> 00:17:29,663
Hver færir keilur? Hver gerir það?

148
00:17:29,663 --> 00:17:30,830
Sjálfselskupúkar.

149
00:17:31,456 --> 00:17:32,749
Rétt hjá þér.

150
00:17:35,001 --> 00:17:38,380
- Trúði Cliff því?
- Eitt hundrað prósent.

151
00:17:38,380 --> 00:17:40,799
Þú hefðir átt að sjá framan í hann.

152
00:17:40,799 --> 00:17:42,509
Það tókst, trúðu mér.

153
00:17:44,427 --> 00:17:47,722
Guð, það var fallegt.

154
00:17:49,891 --> 00:17:53,228
- Ó, og það er ekki allt.
- Segðu.

155
00:17:53,812 --> 00:18:00,318
Svo ég tef fyrir, sagði Cliff hvað ég væri
að gera og hvað ég vildi gera.

156
00:18:00,402 --> 00:18:03,571
Og ég hugsa bara,
ég verð að tefja fyrir þar til þú kemur.

157
00:18:03,655 --> 00:18:07,867
En ég veit ekki, ég gleymdi mér í því.

158
00:18:07,951 --> 00:18:09,286
Og svo...

159
00:18:11,037 --> 00:18:12,289
...lét Cliff vaða.

160
00:18:12,289 --> 00:18:15,875
Ég meina, hann kýldi á það.

161
00:18:16,668 --> 00:18:20,589
- Hvað þýðir það? Peningar?
- Held hann skrifi ekki ávísun sjálfur.

162
00:18:20,589 --> 00:18:23,675
En hann þekkir fólk.
Ég held hann geri þetta.

163
00:18:24,426 --> 00:18:25,594
Þú grínast.

164
00:18:25,594 --> 00:18:29,389
- Ég veit! Hversu frábært?
- Þetta er ótrúlegt.

165
00:18:30,181 --> 00:18:33,310
Erum við í stuði eða erum við í stuði?

166
00:18:34,102 --> 00:18:35,520
Je minn.

167
00:18:42,360 --> 00:18:45,113
Finnst þér eins og einhver elti þig?

168
00:18:48,325 --> 00:18:50,493
Þegar ég skutlaði Wendy á mótelið

169
00:18:50,577 --> 00:18:53,705
fannst henni
einhverjar leynilöggur elta sig.

170
00:18:53,705 --> 00:18:58,335
En þegar ég ók burt
var sami bíllinn á eftir mér.

171
00:19:00,086 --> 00:19:02,630
Þegar ég sá þá, hurfu þeir.

172
00:19:04,674 --> 00:19:09,846
Þú veist hvað þeir segja:
„Syndararnir flýja þegar enginn eltir þá.“

173
00:19:13,475 --> 00:19:14,934
Erum við syndarar?

174
00:19:15,560 --> 00:19:18,855
Nei. Hvað? Það er bara orðatiltæki.

175
00:19:21,649 --> 00:19:24,110
Mér finnst þú syndsamlega sæt.

176
00:19:30,950 --> 00:19:31,951
Jæja.

177
00:19:32,535 --> 00:19:36,790
Hlustaðu á rödd reynslunnar.
Veistu hví þér líður svona?

178
00:19:37,582 --> 00:19:39,292
Því við komumst upp með það.

179
00:19:40,960 --> 00:19:43,296
Það virðist of gott til að vera satt.

180
00:19:43,797 --> 00:19:46,299
En trúðu mér, enginn eltir þig.

181
00:19:48,468 --> 00:19:54,099
Enginn veit hvað við bröllum
nema við, ókei?

182
00:19:58,686 --> 00:19:59,729
Ókei.

183
00:20:02,357 --> 00:20:05,402
Ég skil. Miðað við aðstæður
myndi ég ekki vilja vera nærri

184
00:20:05,402 --> 00:20:07,570
lögreglustöð ef ég væri þú heldur.

185
00:20:08,905 --> 00:20:14,369
Heyrðu, það er verið að pússa viðinn
í fundarherberginu mínu núna,

186
00:20:14,369 --> 00:20:17,872
svo ég nota aðra skrifstofu
á Juan Tabo og Skyline.

187
00:20:18,373 --> 00:20:23,044
Ég leigi naglastofu innganginn
svo skrifstofan er bakatil.

188
00:20:23,128 --> 00:20:24,713
Hittu mig þar kl. 15.

189
00:20:27,048 --> 00:20:29,551
Frábært! Takk. Hvað segirðu, Steve-O?

190
00:20:29,551 --> 00:20:33,096
- Skór. Belti. Jakki.
- Fyrirgefðu, hvað?

191
00:20:33,096 --> 00:20:35,849
Skór. Belti. Jakki.

192
00:20:36,558 --> 00:20:37,517
Í alvöru?

193
00:20:37,517 --> 00:20:38,768
Síðan hvenær?

194
00:20:38,852 --> 00:20:41,563
- Það er ferlið, herra.
- „Herra“?

195
00:20:49,821 --> 00:20:53,158
- Hví datt ég í lukkupottinn?
- Maður veit aldrei.

196
00:21:02,125 --> 00:21:04,919
Sæl, hvernig líður þér
á þessum fallega degi?

197
00:21:07,839 --> 00:21:11,926
Fékkstu kökuvöndinn sem ég sendi
Carlos á afmælinu hans?

198
00:21:12,010 --> 00:21:16,181
Ég sett nokkrar auka með hvítu súkkulaði
og makadamíuhnetum fyrir þig.

199
00:21:17,015 --> 00:21:18,141
Hvað viltu?

200
00:21:18,141 --> 00:21:20,518
Ég? Ekkert.

201
00:21:20,602 --> 00:21:25,523
En ég á „vin“ sem þyrfti
að fá foráheyrn breytt.

202
00:21:25,607 --> 00:21:27,484
Gonzalez gegn Nýju Mexíkó.

203
00:21:28,151 --> 00:21:31,821
„Vinur minn“ hugsaði
um föstudaginn um kl. 9.

204
00:21:31,905 --> 00:21:38,286
Áður en dómarinn fær fjórða kaffibollann.
Því koffínhrollur fer illa með vörnina.

205
00:21:39,245 --> 00:21:40,580
Hvaða vinur?

206
00:21:42,499 --> 00:21:44,542
Ég held þið hafið ekki hist.

207
00:21:56,638 --> 00:21:59,724
- Hvað er þetta?
- Beiðni um áheyrnarbreytingu.

208
00:22:01,309 --> 00:22:02,852
Heyrðu mig. Þetta er ég.

209
00:22:04,312 --> 00:22:06,731
Sjáðu, mamma! Ég var að útskrifast!

210
00:22:08,525 --> 00:22:10,276
Ég get ekki notað penna.

211
00:22:10,360 --> 00:22:12,737
Ég hef enga andstæða þumla.

212
00:22:16,366 --> 00:22:17,408
LOKAÐ

213
00:22:25,041 --> 00:22:26,751
Heyrðu! Hannah Banana!

214
00:22:26,751 --> 00:22:28,002
Sæll, sjálfur.

215
00:22:46,354 --> 00:22:49,274
Svona, Bill.
Maður kemur ekki svona fram við konu.

216
00:22:49,274 --> 00:22:53,403
Njóttu ásta með henni, Bill.
Varlega. Þannig gerir maður það.

217
00:22:53,403 --> 00:22:56,739
Hugsaðu Barry White, dragðu á tálar.

218
00:23:09,335 --> 00:23:11,671
Hver andskotinn gengur á?

219
00:23:11,671 --> 00:23:15,300
Hví koma allir fram við mig
eins og ég sé graftarbóla?

220
00:23:15,300 --> 00:23:18,886
Ég kunni betur við þig
þegar þú varst venjulegt sníkjudýr.

221
00:23:18,970 --> 00:23:20,722
- En þetta...
- „Þetta“?

222
00:23:20,722 --> 00:23:22,432
Hvað er „þetta“?

223
00:23:23,433 --> 00:23:25,977
Ég skil að berjast fyrir skjólstæðingunum.

224
00:23:25,977 --> 00:23:27,937
Í hjarta mínu skil ég það.

225
00:23:28,646 --> 00:23:31,441
En þú plataðir réttinn,
þú plataðir dómarann.

226
00:23:31,441 --> 00:23:32,817
Og fyrir hvað?

227
00:23:32,817 --> 00:23:36,988
Til að koma klikkhaus
úr dóphring aftur á götuna?

228
00:23:38,156 --> 00:23:39,157
Það er bara...

229
00:23:40,491 --> 00:23:41,326
...rangt.

230
00:23:44,621 --> 00:23:47,165
Það er stórt talað, Bill. Sannaðu það.

231
00:23:47,165 --> 00:23:48,708
Sannaðu það, Bill!

232
00:23:50,293 --> 00:23:51,502
Eitt er að sanna,

233
00:23:52,170 --> 00:23:53,421
annað er að vita.

234
00:24:00,178 --> 00:24:01,012
Abe...

235
00:24:01,554 --> 00:24:03,681
Viltu fara aftur í sýslufangelsið?

236
00:24:05,016 --> 00:24:06,142
Jæja þá.

237
00:24:06,684 --> 00:24:08,895
- Fundirnir?
- Ég mæti.

238
00:24:09,854 --> 00:24:10,688
Frábært.

239
00:24:11,939 --> 00:24:17,487
Þá sé ég þig á þriðjudaginn,
stundvíslega kl. 9.

240
00:24:24,786 --> 00:24:25,703
Viltu þetta?

241
00:24:26,829 --> 00:24:28,456
Já.

242
00:24:32,168 --> 00:24:33,336
Taktu þinn tíma.

243
00:24:36,589 --> 00:24:38,091
Ég kem strax aftur.

244
00:24:48,976 --> 00:24:50,019
Njóttu.

245
00:24:54,857 --> 00:24:57,610
Þú mátt sitja þar sem þú vilt.
Það er í lagi.

246
00:25:02,740 --> 00:25:04,992
Abe, gætirðu passað dótið mitt?

247
00:25:11,582 --> 00:25:15,169
EL CAMINO VEITINGASTAÐURINN

248
00:25:53,124 --> 00:25:54,834
- Heyrðu.
- Halló.

249
00:25:54,834 --> 00:25:55,835
Fallegur dagur.

250
00:25:57,420 --> 00:25:58,588
Eltið þig mig?

251
00:25:59,380 --> 00:26:00,715
Fyrirgefðu?

252
00:26:02,091 --> 00:26:05,094
Eltið þið mig?

253
00:26:09,265 --> 00:26:10,975
Hvað eruð þið, í löggunni?

254
00:26:15,438 --> 00:26:16,481
Vitið þið hvað?

255
00:26:17,106 --> 00:26:18,649
Ég held þið eltið mig.

256
00:26:18,733 --> 00:26:20,485
Ef þið segið ekki til ykkar

257
00:26:20,485 --> 00:26:23,571
hringi ég inn bílnúmerið því mér er ógnað.

258
00:26:26,032 --> 00:26:27,617
Afsakaðu ónæðið.

259
00:26:29,744 --> 00:26:31,120
Eigðu góðan dag, frú.

260
00:27:24,131 --> 00:27:26,175
Saul Goodman, skjótt réttlæti.

261
00:27:28,719 --> 00:27:31,639
Nei, það er ekkert gjald
fyrir fyrsta samtal.

262
00:27:32,932 --> 00:27:34,350
Í dag? Já.

263
00:27:35,726 --> 00:27:38,354
Ég á tíma um kl. 15.30.

264
00:27:38,980 --> 00:27:43,317
Ég vinn í annari skrifstofu.
Hún er á Juan Tabo og Skyline,

265
00:27:43,401 --> 00:27:47,238
ég leigi naglastofu innganginn,
svo skrifstofan er bakatil.

266
00:27:48,656 --> 00:27:50,157
Frábært. Og nafnið?

267
00:27:51,617 --> 00:27:52,577
Dante.

268
00:27:53,286 --> 00:27:54,203
Sjáumst þá.

269
00:27:59,667 --> 00:28:01,752
Saul Goodman, skjótt réttlæti.

270
00:28:03,379 --> 00:28:06,465
Já, ég... Já, ég á tíma í dag...

271
00:28:06,549 --> 00:28:09,135
Bíddu við, það er annað símtal.

272
00:28:09,135 --> 00:28:11,679
Saul Goodman, skjótt réttlæti.

273
00:28:11,679 --> 00:28:13,014
Bíddu augnablik.

274
00:28:13,014 --> 00:28:14,682
Afsakaðu.

275
00:28:14,682 --> 00:28:17,435
Það er mikið um að vera í dag.

276
00:28:17,435 --> 00:28:20,521
HEILSULIND OG NAGLASTOFA

277
00:28:30,740 --> 00:28:33,826
Fáðu fólkið út. Á stundinni!

278
00:28:33,910 --> 00:28:37,788
- Hvað, þessa menn? Angra þeir þig?
- Ekki þá! Inni!

279
00:28:53,346 --> 00:28:55,514
Hver kom til að hitta Saul Goodman?

280
00:28:56,891 --> 00:28:58,726
Ert þú hann? Ertu Saul?

281
00:28:59,268 --> 00:29:00,102
Já.

282
00:29:04,398 --> 00:29:06,192
Þá ert þú maðurinn, ekki satt?

283
00:29:07,151 --> 00:29:08,486
Hvaða maður er það?

284
00:29:08,486 --> 00:29:09,862
Maður Salamanca.

285
00:29:14,033 --> 00:29:14,867
Já.

286
00:29:15,785 --> 00:29:16,619
Það er ég.

287
00:29:17,578 --> 00:29:20,206
Allir sem eiga tíma þegar...

288
00:29:20,206 --> 00:29:21,666
Vitið þið hvað?

289
00:29:26,337 --> 00:29:27,672
Hr. Spooge...

290
00:29:27,672 --> 00:29:29,340
Það er bara „Spooge“.

291
00:29:30,007 --> 00:29:32,510
Bara Spooge. Skilið. Jæja.

292
00:29:32,510 --> 00:29:33,928
Gael Morengo.

293
00:29:34,679 --> 00:29:36,472
Jæja. Bíðum við...

294
00:29:36,472 --> 00:29:37,848
Er Dante hérna?

295
00:29:39,058 --> 00:29:40,810
Og Rocco Kubler.

296
00:29:40,810 --> 00:29:45,147
Jæja. Allir hinir, vinsamlegast bíðið úti.

297
00:29:45,231 --> 00:29:46,107
Allt í lagi?

298
00:29:46,107 --> 00:29:50,319
Nema þið óskið
eftir snyrtingu meðan þið bíðið.

299
00:29:50,403 --> 00:29:53,739
Það er sérstakt gjald
en ég mæli algjörlega með því.

300
00:29:53,823 --> 00:29:56,742
Besta naglasnyrtingin í Albuquerque.

301
00:29:57,535 --> 00:29:58,828
Sex...

302
00:30:00,329 --> 00:30:03,541
Sá heppni númer sjö... Ó, ertu með honum?

303
00:30:03,541 --> 00:30:05,501
Og átta...

304
00:30:05,501 --> 00:30:07,128
Flottur leðurjakki.

305
00:30:07,128 --> 00:30:08,129
Ókei, saman.

306
00:30:08,129 --> 00:30:09,964
Og... níu.

307
00:30:11,966 --> 00:30:13,634
Takk fyrir þolinmæðina.

308
00:30:13,718 --> 00:30:15,011
Og...

309
00:30:15,011 --> 00:30:16,762
Réttlæti fyrir alla!

310
00:30:19,348 --> 00:30:21,851
Gúrkuvatnið er bara fyrir viðskiptavini!

311
00:30:21,851 --> 00:30:24,603
Trúðu mér, þeir munu borga.

312
00:30:25,229 --> 00:30:26,439
Spooge.

313
00:30:27,940 --> 00:30:30,151
Jæja, Spooge og vinur. Ókei.

314
00:30:30,151 --> 00:30:31,610
Gott. Þessa leið.

315
00:30:33,362 --> 00:30:34,321
Sæl, frú.

316
00:30:40,119 --> 00:30:42,663
Gott. Til vinstri við þvottavélina.

317
00:30:42,747 --> 00:30:44,248
Gjörðu svo vel.

318
00:30:44,248 --> 00:30:47,626
Sjáumst í næstu viku, Rosa.
Gott að hitta þig, Pilar.

319
00:30:47,710 --> 00:30:49,837
Gleymið ekki að koma með fjölskyldu.

320
00:30:49,837 --> 00:30:52,840
- Gerum það. Takk frk. Wexler.
- Farið varlega.

321
00:31:05,269 --> 00:31:07,646
- Búin í dag?
- Já. Gjörðu svo vel.

322
00:31:08,189 --> 00:31:09,982
Eigðu það, Shelby.

323
00:31:10,066 --> 00:31:12,234
- Takk, Kim. Sjáumst á morgun?
- Já.

324
00:31:15,029 --> 00:31:16,072
Þeir eru farnir.

325
00:31:18,407 --> 00:31:19,283
Fyrirgefðu?

326
00:31:21,369 --> 00:31:24,121
Mennirnir tveir sem eltu þig.

327
00:31:24,747 --> 00:31:25,706
Þeir eru farnir.

328
00:31:28,250 --> 00:31:29,251
Þekki ég þig?

329
00:31:30,669 --> 00:31:32,588
Gætirðu sest augnablik?

330
00:31:32,588 --> 00:31:35,216
Og ég svara öllum spurningum sem ég get.

331
00:31:51,232 --> 00:31:54,068
Ég læt menn fylgjast með þér
og manninum þínum.

332
00:31:54,985 --> 00:31:59,365
Ég er ekki í löggunni. Og að mér vitandi
rannsakar hún hvorugt ykkar.

333
00:32:00,449 --> 00:32:03,119
Ég veit að þið hafið sýslað ýmislegt

334
00:32:03,119 --> 00:32:06,330
sem þið viljið líklega halda leyndu.

335
00:32:06,414 --> 00:32:07,915
Mér er sama.

336
00:32:08,916 --> 00:32:11,293
Þetta snýst ekki um það.

337
00:32:11,377 --> 00:32:13,838
Ég reyni að leysa minn eigin vanda.

338
00:32:15,339 --> 00:32:16,424
Hvaða vanda?

339
00:32:19,760 --> 00:32:21,387
Lalo Salamanca.

340
00:32:24,640 --> 00:32:26,392
Lalo Salamanca er dauður.

341
00:32:34,066 --> 00:32:35,109
Hann...

342
00:32:37,027 --> 00:32:37,903
...er það ekki?

343
00:32:40,322 --> 00:32:42,783
Við fylgjumst með öllum sem hann
gæti haft samband við.

344
00:32:42,867 --> 00:32:44,702
Þið hjónin eruð þar á meðal.

345
00:32:45,411 --> 00:32:49,290
Líklega hefur hann ekki samband,
hann hefur annað að hugsa.

346
00:32:50,291 --> 00:32:53,043
En ef svo ólíklega vildi til
að hann geri það...

347
00:32:57,047 --> 00:32:58,549
Og fyrir hvern vinnur þú?

348
00:33:01,302 --> 00:33:03,679
Ég sagðist svara öllu sem ég gæti.

349
00:33:10,311 --> 00:33:12,771
Þú ert maðurinn úr eyðimörkinni.

350
00:33:13,564 --> 00:33:15,232
Sá sem var þar með Jimmy.

351
00:33:19,069 --> 00:33:21,197
Hví segirðu mér þetta en ekki honum?

352
00:33:24,074 --> 00:33:26,744
Því ég tel þig harðgerðari.

353
00:33:31,957 --> 00:33:33,000
Jæja þá.

354
00:33:34,460 --> 00:33:36,587
Hér er það besta fyrir alla.

355
00:33:37,379 --> 00:33:41,175
Sjáirðu mína menn aftur,
sem ég vona að þú gerir ekki,

356
00:33:41,175 --> 00:33:43,427
láttu þá bara vera.

357
00:33:43,969 --> 00:33:46,013
Láttu sem þeir séu ekki þarna.

358
00:33:46,931 --> 00:33:48,766
Og bráðum verða þeir það ekki.

359
00:33:49,850 --> 00:33:53,354
Og þið maðurinn þinn bara...

360
00:33:54,688 --> 00:33:56,440
...haldið áfram ykkar lífi.

361
00:33:59,610 --> 00:34:01,153
Ég veit hver þú ert.

362
00:34:03,197 --> 00:34:05,324
Þú vannst í bílastæðahúsi réttarins.

363
00:34:07,660 --> 00:34:09,203
Þú ert starfsmaðurinn.

364
00:34:12,998 --> 00:34:14,041
Ég var það.

365
00:35:33,287 --> 00:35:36,915
<i>Markaðir halda áfram að vera á sveimi
þar til seðlabankinn herðir vexti.</i>

366
00:35:36,999 --> 00:35:39,960
<i>Suma daga mun okkur
líða vel varðandi hraða efnahagsbata.</i>

367
00:35:40,044 --> 00:35:41,587
<i>Ekki jafn vel aðra daga.</i>

368
00:38:00,058 --> 00:38:02,770
Bíddu við. Ég sá það einhversstaðar.

369
00:38:03,729 --> 00:38:04,855
- Hvar?
- Hérna.

370
00:38:05,773 --> 00:38:06,815
Neibb.

371
00:38:10,277 --> 00:38:12,196
Hvernig gengur þinn kantur?

372
00:38:12,946 --> 00:38:15,240
Mig vantar ennþá tvo.

373
00:38:17,826 --> 00:38:19,745
Þú fannst öll kantstykkin.

374
00:38:19,745 --> 00:38:21,205
Ég hélt það.

375
00:38:21,955 --> 00:38:24,374
Kannski týndum við nokkrum.

376
00:38:25,083 --> 00:38:29,546
Þessi tré eru að fara með mig.
Þau líta öll nákvæmlega eins út.

377
00:39:00,369 --> 00:39:02,329
Það var grænn Ford sendibíll.

378
00:39:02,871 --> 00:39:05,582
Hann var fyrir aftan mig
nær þrjár húsalengdir.

379
00:39:05,666 --> 00:39:08,377
1998 Econoline. Við skoðuðum númerið.

380
00:39:08,377 --> 00:39:11,797
Maðurinn er sjálfstæður pípari.
Hann er alvöru.

381
00:39:13,924 --> 00:39:16,093
Sá sem þú settir í eldhúsið mitt...

382
00:39:16,093 --> 00:39:17,469
Roy.

383
00:39:17,553 --> 00:39:22,224
Þú sagðir mér að hann hefði
reynslu af matarundirbúningi.

384
00:39:22,224 --> 00:39:24,518
Tvö ár í McDonald's í háskóla.

385
00:39:25,310 --> 00:39:29,106
Hann kom ekki bara til
að steikja franskar, ég þarf menn nærri.

386
00:39:31,483 --> 00:39:33,527
Hann stenst ekki Pollo kröfur.

387
00:39:35,362 --> 00:39:36,947
Ég finn staðgengil.

388
00:39:38,240 --> 00:39:39,992
Það er mannekla.

389
00:39:39,992 --> 00:39:43,662
Mennirnir vinna
18 tíma daga út um allan bæ.

390
00:39:44,162 --> 00:39:47,040
Tvær vikur og ekkert.

391
00:39:47,124 --> 00:39:48,125
Og...?

392
00:39:49,209 --> 00:39:52,921
Með fullri virðingu
telur heimurinn hann dauðan.

393
00:39:55,382 --> 00:39:59,469
Lalo Salamanca er lifandi.

394
00:40:03,390 --> 00:40:04,683
Hvar er hann þá?

395
00:40:25,078 --> 00:40:25,913
Sæl.

396
00:40:26,622 --> 00:40:27,748
Sæll.

397
00:40:28,707 --> 00:40:30,334
Hvernig var dagurinn?

398
00:40:30,334 --> 00:40:31,585
Hví erum við hérna?

399
00:40:31,585 --> 00:40:33,503
Sjáðu. Hvað finnst þér?

400
00:40:35,589 --> 00:40:36,548
Um hvað?

401
00:40:37,966 --> 00:40:41,136
Nýju skrifstofuna mína. Mögulega. Komdu.

402
00:40:56,276 --> 00:40:58,362
Frú Nguyen henti mér út.

403
00:40:58,987 --> 00:41:00,989
Ha? Af hverju?

404
00:41:01,073 --> 00:41:02,366
Það er löng saga.

405
00:41:02,366 --> 00:41:06,745
En málið er að hún vill mig út að eilífu.

406
00:41:07,454 --> 00:41:10,582
ATVINNUHÚSNÆÐI
TIL LEIGU

407
00:41:10,666 --> 00:41:12,000
Slæmur dagur, ha?

408
00:41:13,460 --> 00:41:16,296
Nei. Þetta var frábær dagur.

409
00:41:16,380 --> 00:41:19,007
Með raunverulegum borgandi kúnnum.

410
00:41:19,091 --> 00:41:20,550
Það fréttist.

411
00:41:20,634 --> 00:41:25,430
Fólk hendir fé í mig bara til að segja
að Saul Goodman sé lögmaður sinn.

412
00:41:27,182 --> 00:41:29,184
Vegna fyrrum skjólstæðings.

413
00:41:30,852 --> 00:41:33,188
Ja, ég meina, það er hluti þess.

414
00:41:33,188 --> 00:41:37,901
En málið er að ég þurfti
nýja skrifstofu í hvelli.

415
00:41:38,735 --> 00:41:42,155
Húsnæðið er ömurlegt en verðið er rétt.

416
00:41:42,239 --> 00:41:45,200
Og ég held ég geti talað
leigusalann inn á mánaðarleigu.

417
00:41:45,200 --> 00:41:48,954
Svo það er tímabundið.
Þar til ég finn eitthvað betra.

418
00:41:53,375 --> 00:41:54,251
Heyrðu.

419
00:41:55,419 --> 00:41:56,503
Hvað finnst þér?

420
00:42:03,385 --> 00:42:04,553
Það er lítið.

421
00:42:06,263 --> 00:42:08,724
Það er skítugt.

422
00:42:10,267 --> 00:42:11,893
Og staðurinn lyktar illa.

423
00:42:16,398 --> 00:42:19,317
En dómshúsið er fimm húsalengdum frá.

424
00:42:19,901 --> 00:42:22,696
Þú kemst ekki til MDC
án þess að aka fram hjá.

425
00:42:22,696 --> 00:42:26,742
Góð bílastæði.
Tryggingaféð er ekki langt frá og...

426
00:42:28,744 --> 00:42:30,787
...Taco Cabeza er handan hornsins.

427
00:42:32,706 --> 00:42:34,624
Gæti reynst óslípaður demantur.

428
00:42:39,004 --> 00:42:40,338
Lofaðu mér bara...

429
00:42:42,466 --> 00:42:44,009
...að færa ekki klósettið.

430
00:42:48,513 --> 00:42:50,223
Þar kom það. Jæja.

431
00:42:52,434 --> 00:42:54,144
Talandi um Taco Cabeza...

432
00:42:54,144 --> 00:42:55,812
Ég er banhungruð. Komum.

433
00:43:52,911 --> 00:43:55,413
Íslenskur texti: Unnur Friðriksdóttir

